Anxiety

Kvíði er eitthvað sem flestir finna fyrir um ævina, enda um viðvörunarkerfi líkamans að ræða þegar eitthvað ógnandi er í nánd, en hjá sumum er það aðeins og jafnvel miklu meira en það, sumir, t.d. ég hafa hreinlega ofvirkt viðvörunarkerfi og fá kvíða við nánast ástæðulausum atvikum eða hugsunum. Ég er mjög venjuleg ung kona, 30 ára, á eitt barn og á mjög gott líf en af einhverjum ástæðum hef ég mikinn kvíða, þá aðallega fyrir heilsunni minni og þeirra sem eru mér mikilvægastir. Ég hef átt mjög erfið tímabil í gegnum ævina og vantaði alltaf að hitta einhvern sem skildi mig, því að það eru frekar fáir sem skilja þetta því að þetta er andlegt og stendur ekki utaná mér eins og fólk sem er fótbrotið. Ég hefði viljað geta dottið inná eitthvað blog þar sem einhver með sama vandamál og ég því að það er mjög erfitt að vera einn í þessum aðstæðum.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband