Róandi/kvíðastillandi lyf.

Hefur þú þurft að taka róandi/kvíðastillandi lyf við kvíða?

Á þessari síðu http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_benzodiazepines má finna tegundir þessara lyfja sem oft kallast Benzo eða Z drugs.
Í heilda eru þau nefnd Benzodiazepines.

Læknar og fólk alment þarf að vita meira um þessi lyf en gert er nú þegar. Þessi lyf eru ekki góð fyrir alla og það sem verra er er að margir læknar og lyfjafræðingar vilja ekki viðurkenna aukaverkanir, ávanabindingu og hættuleg frákvarfseinkenni þessara lyfja.

Ég hef slæma reynslu af þessum lyfjum og er sem betur fer að ná mér út úr þessum vítahring sem ég komst í þegar ég fékk þau fyrst hjá lækni. Ég var sett á þessi lyf, engin eftirfylgni hjá lækni og ég var of lengi á þessu og hafði ekki hugmynd um það að þetta væri í raun að gera ástandið mitt mun verra en nokkurn tíman áður. Ég fór að fá hræðileg frákvarfseinkenni ef það liðu of margir klukkutímar á milli daglegrar töku lyfsins, þá var mér sagt að taka meira lyf en líkaminn náði alltaf að venjast lyfinu og kallaði á meira. Ég var sem betur fer mjög meðvituð um þetta ástand og vissi að ég þyrfti að hætta að taka það, þ.e.a.s. eftir að ég aflaði mér upplýsingar um það á internetinu. Læknirinn minn lét mig afskiptalausa með lyf í höndunum sem ég hafði ekkert vit á, og sem í raun eyðilagði part úr lífi mínu og gerðu mér langt langt langt um erfiðara fyrir að ná bata í mínum kvíða.

Núna í dag eru 3 mánuðir síðan ég hætti og hef ekki enn náð fullum bata, það hefur verið mjög erfitt að hætta á þessum lyfjum og oft hef ég verið á ystu nöf með að láta leggja mig inná geðdeild, hvernig má það vera þegar ég hef aðeins verið að berjast við kvíða, þar til ég byrjaði að taka þessi lyf. Það getur tekið langan tíma, mánuði jafnvel ár. En ég er dugleg og held í vonina og sýni þolinmæli.

Hér eru nokkrar heimasíður sem gætu hjálpað þeim sem eru í svipuðum sporum og ég eða geta lesið sér til um áður en þeir taka inn þessi lyf.

Ég tek það fram að það bregðast ekki allir eins við lyfjum. Þetta er mín reynsla. Þín/annara reynsla getur verið allt öðruvísi.

Ég legg áherslu á Ashton Manual sem hægt er að finna á þessum heimasíðum en það er læknir sem hefur rannsakað mikið þessi lyf eða í um 12 ár og veit mjög mikið um þetta.

http://www.non-benzodiazepines.org.uk/
http://benzowithdrawal.com/
http://www.benzo.org.uk/

Vonandi hjálpar þetta einhverjum.

:)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband